Details

Læknirinn og dauðinn


Læknirinn og dauðinn


Grimmsævintýri

von: Grimmsbræður, Árni Beinteinn Árnason

0,99 €

Verlag: Saga Egmont Hörbuch
Format: MP3 (in ZIP-Archiv)
Veröffentl.: 29.01.2022
ISBN/EAN: 9788728038659
Sprache: Isländisch

Dieses Hörbuch erhalten Sie ohne Kopierschutz.

Beschreibungen

Þegar fátækur bóndi eignast 13. barnið sitt heldur hann af stað út á þjóðveginn til að finna skírnarvott til að tryggja barninu bjarta framtíð. Á vegi hans verða Guð almáttugur, Kölski og dauðinn sjálfur. Eftir nokkra umhugsun velur bóndinn fátæki dauðann sem skírnarvott því hann gerir ekki upp á milli nokkurs manns. Barnið vex og er orðið að ungum pilti þegar dauðinn færir því skírnargjöfina og gerir það að frægum lækni. Það eina sem hann þurfti að gera var að fylgja fyrirmælum dauðans um hverjum ætti að bjarga og hver ætti að deyja. Innan skamms er pilturinn orðinn frægasti læknir í heimi sem fylgir fyrirmælum dauðans í einu og öllu eða allt þar til hann er kallaður til að hlúa að konungnum. Ungi pilturinn stendur nú frammi fyrir þvi að að taka ákvörðun um afdrif konungsins þess minnugur að dauðinn gerir ekki upp á milli nokkurs manns. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Diese Produkte könnten Sie auch interessieren:

Himlen över Black Mountains
Himlen över Black Mountains
von: Alexandra Zöbeli, Mimmi Kandler
ZIP ebook
11,99 €
Märchen-Legenden 10
Märchen-Legenden 10
von: Hans Christian Andersen, Sabine + Manfred Scheuermann
ZIP ebook
8,95 €
Unwrapped
Unwrapped
von: Evangeline Anderson, Marcella Black, Vincent Skye, Oliver Clarke
ZIP ebook
21,99 €